Ingan

Komin á gamlar slóðir ;)

26.05.2007 12:27:26 / Ingan

Símamella

Þessi elska virðist ætla að rata aftur í hendur eiganda síns! Ekki það að ég sé að deyja úr söknuði en auðvitað er alltaf gott að hafa síma við hönd. Þar sem Gyða vinkona var ekki búin að sækja símann minn upp á hótelið áðan og ég orðin pínu smeyk um að honum yrði stolið ef hann lægi bara á borðinu hjá þeim batteryslaus, þá bjallaði mín bara upp á Saga Hotel og lét reyna á sína undurfögru ensku og þeir ætla að senda símann eftir helgi :) Þannig þið getið kannski bara hringt í mig næstu helgi? híhí!

Annars er ég bara hress. Við systur erum að vinna:) Voða gaman! En mér þykir gott að sjá að það er gott að vinna með Ólínu! Hún er svo dugleg þessi elska;) Þannig núna líður mér vel í vinnunni með 2 duglegar píur í vinnu :D Þyrfti reyndar að finna e-n til að vinna e-r helgar.. er ekki alveg að nenna að vera hérna allar helgar í allt sumar;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 13:37:17 / Ingan

It's better to be save than sorry..

Ef þið þurfið að ná í mig á daginn þá er ég í vinnunni (552 6803) en ef þið viljið heyra í mér á kvöldin þá getið þið hringt heim (587 6306) eða í Arann minn ef það svarar ekki heima (660 6306) og hann segir ykkur þá hvar er hægt að ná í mig :) hehe

 Ég er samt pínu að fíla þetta símalausa líf... en ég gæti orðið pirruð á því á morgun :) who knows.. :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 19:53:06 / Ingan

Aulinn ég...

Hálfvitinn ég... GLEYMDI SÍMANUM Á HÓTELINU Í KÖBEN :^) ég get verið svo mikill bjáni að það hálfa væri nóg... við fórum yfir hvort það væri nokkuð í herberginu en síminn var í rúminu :S

Vona samt að Gyða sé búin að sækja hann! Það svaraði einhver kona í hann og ég alveg aaaaa.. my friend Gyða will come and get it.. hehe:)

En jæja.. æðisleg ferð að baki!

Þangað til næst..


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 09:03:24 / Ingan

í Odense

Hæ krúslur. Vildi bara kasta á ykkur smá kveðju frá Odense :) kom hingað í gær til Gyðu systur! Við skötuhjú erum búin að eiga frábært frí saman en í gær skildust leiðir;) Veðrið... það er hins vegar önnur saga.. en það er fínt núna:)

Hafið það gott og farið vel með ykkur. Við systur ætlum annað hvort að skreppa í verslunarleiðangur eða til Árhúsa :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 10:23:59 / Ingan

upplýsingaflæði..

Flugupplýsingar (fyrir mig og fleiri.. hehe)

RVK - LONDON: 10. maí! Brottför 16:00 og koma 19:55 :)

LONDON - CPH: 15. maí! Brottför 13:50 og koma 16.:35 :)

CPH - RVK: 21. maí! Brottför 13:15 og koma 14:35 :)


SJIBBY!!! Á ég samt að segja ykkur sorglegt:S Ég kláraði að hekla peysuna í gær:) MEGA flott... en 200% of lítil :( Svo ég ætla ekki einu sinni að taka hana með og reyna að troða Rósu litlu í hana :| Veit ekki hvaða kjánaskapur þetta er í mér.. gerði vitlausa stærð :S En ég bæti henni þetta bara upp :D

Við Ari ætlum að taka líííítinn farangur með! Nánast ekkert.. nema e-n mat fyrir Marlín :)

Hlakka svo til að fara til Marlínar og co! Hlakka svo til að hitta Gyðu vinkonu og Jökul:)!! Hlakka svo til að hitta Gyðu systur! :) Hlakka svo til að kíkja í heimsókn til Helgu systur pabba og co! Eins gott að þau verði heima;) Víhíhíhíííííí

Ingan spennt!

p.s. Fékk blóðnasir í morgun... Hvað er það??


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 11:14:38 / Ingan

Kúahland eða hunang?

Haldiði að kella hafi ekki mætt aftur í gær og þá sagt að ég væri að verða fræg fyrir að vera með hunangslitaða hárið! Hvað varð um kúahlandið??? Annars er ég nú að fara í ljósar strípur seinni partinn til hennar Erlu perlu:) Fer líka í litun og plokkun í dag svo kannski maður verði bara skvísa:) Who knows!

Ekki á morgun heldur hinn.............. JIBBY!!! Hlakka svo til að hitta Marlín, Jóel, Rósu og Nick:D:D:D og svo auðvitað baunana mína líka:*

Ætlum svo að kíkja á Hjördísi og Óskar á morgun (systur Ara) og kíkja á kúluna hennar sem stækkar víst óðum;)

Annars er ég bara í vinnunni og hef ekkert að segja... Mirandas kynning hjá múttu í kvöld:D

Jæja.. LATER! aligator!


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 17:20:27 / Ingan

Fönkí dagur!

Fólk getur verið svo asskoti pirrandi!!!

Í gær fengum við mjólkursendingu. Sem er ekki frásögu færandi nema í staðin fyrir að fá 1 bakka af hrísmjólk þá fengum við 11... Crap!

Í dag:

  • Fengum við sendingu frá Innness.. Í staðin fyrir að fá 1 poka af fílakaramellum þá fengum við 1 kassa... sem inniheldur 6 poka! CRAP!
  • Fengum við sendingu frá Plastprent. Pantaði 2x plastfilmurúllur og 4 litla ávaxtapoka. Fékk sitthvora gerðina af plastfilmunum í staðin fyrir 2 af sömu og 4 stóra poka... jæææææja!
  • Fengum við sendingu frá Ó.J & Kaaber og átti að koma litlar dósir af ferskjum. NEI fengum stórar dósir... OG það vantaði nokkrar tannkremstúpur í kassann.. weird! Urrrrr
  • BILAÐI grænmetisvigtin og ég get ekki sett neitt grænmeti fram.. Vil helst ekki fara að giska á hvað hvað er þungt.. hehe!

Og ef þið hélduð að hér með væri upptalningu minni lokið.. ÞÁ VAR KONA AÐ SPURJA MIG HVORT ÉG HEFÐI ÞVEGIÐ HÁRIÐ MITT UPP ÚR KÚAHLANDI!!!!!!!!!!!!!!! (er að lýsa það aftur...)

#%&/$& fólk!


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 11:26:37 / Ingan

*skömmustusvipur*

Vá hvað ég er orðin léleg að blogga!

Slétt vika í að við skötuhjú flúum land! Flugið fer kl. 16 svo það verður ekkert stress að vakna. Sweet;) Ætlum líka að taka mjög lítið dót með svo þetta verður kökusneið!

Búið að vera nóg að gera undanfarið!! Bæði hérna í búðinni og í bókhaldinu og svo var ég að þjóna með Evu skvísu á mánudaginn frá 21-03:30 á árshátíð. Fyndið að vera edrú og þekkja engan/fáa í svona samkomu. Við Eva hlóum oft þetta kvöld, enda einkenndist það af vinnustaðalsleikum 8| Haha!

Er byrjuð að safna fyrir ljósmyndaskólanum í haust:) Nú ef ég beila svo þá á ég fullt af pening.. hehe! Neinei ég beila vonandi ekkert:P En skólinn kostar nottla slatti mikið og ef ég eyði öllum peningunum sem ég vinn fyrir núna þá verður erfitt að ætla að taka hálfa milljón úr rassvasanum í haust!

Birna sæta á afmæli á lau og verður þá eitthvað húllum hæ:)

En jæja.. þarf víst að prenta út reikningsyfirlit!

LATER!

p.s.s.s.s... gerði flickr síðu.. en það eru bara 3 myndir komnar inn:) Híhí! http://www.flickr.com/photos/idm ;)


p.s. ERUÐ ÞIÐ AÐ FUCKIN GRÍNAST MEÐ STARFSLOKASAMNING FYRRUM FORSTJÓRA GLITNIS???? 800 MILLJÓNIR!!! ÉG MÓTMÆLI!!! Aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaarg!!! Ok hann var bankastjóri. En who gives a fuckin' shit??? Væri ekki nær að gera eitthvað viturlegt við þessar millur... hvað hefur hann að gera við þær? Seldi sjálfur hlutabréfin sín í bankanum og fékk 4,6 millJARÐA!!!

*öskur!*


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 09:44:25 / Ingan

Það sem framundan er... + Breytingar...

Í DAG er 23. apríl.. Tíminn er allt of (f)ljótur að líða :|:lol: Í dag er 26. apríl Þegar breytingar eru gerðar....:D

Nóg að gerast framundan....

  • Í kvöld er kaffihús með Guffu, Telmu og Siggu :D (LIÐIÐ)
  • One Stroke ávaxta-námskeið í kvöld kl 18 með mömmu :)
  • Helgina 28-29. apríl er ég að fara á Photoshop námskeið:) Maggi verður einnig hjá okkur um helgina því hann er að fara í sveinsprófs undirbúning;)
  • Fimmtudaginn 3. maí fer Arinn minn líklegast til Bandaríkjanna en það er ekki ennþá komið á hreint 8| BREYTING
  • 1. maí förum við mamma á annað One stroke námskeið.. en þá förum við á funky flowers og fantasy bugs:)
  • Helgina 4-6. maí flytur Egill austur :) og laugardaginn 5. Maí á Birna afmæli:*:*
  • Mánudaginn 7. maí kemur Ari heim EF hann hefur farið út ;) hehehe BREYTING
  • Fimmtudaginn 10. maí förum við Ari til LONDON að heimsækja Marlín og fjölskyldu og skoða og versla og borða og svo framvegis... hehe :D
  • Þriðjudaginn 15. maí förum við svo með EasyJet yfir til Köben og þá liggur leiðin beint til Gyðu vinkonu og Jökuls og ætlum við að gista hjá þeim í 2 daga og sötra bjór og shoppa aðeins meira og skoða Köben:D
  • Fimmtudaginn 17. maí skilja svo leiðir okkar Ara og ég stíg í lestina til Odense og hann til Árhúsa:) Ég ætla þá að fara til elsku Gyðu systur og hann til Bjössa:haha: Þá verður ýmislegt fleira brallað ;)
  • Mánudaginn 21. maí komum við svo heim!
  • Fimmtudaginn 24. maí fer Ari til Bandaríkjanna! STaðfeST!! Kemur heim mánudeginum eftir:)
  • 26. maí útskrifast Dropi :haha:
  • 2. júní á Dropi afmæli :D
  • Þriðjudaginn 5. júní förum við svo í útskriftamyndatöku, Ég og Ari og ég ætla að njósna aðeins hvernig ljósmyndarinn virkar;) hehehehe
  • 7. júní á svo mamma afmæli :lol:

OG SVO FRAMVEGIS! Nóg að gerast..... víhííííí :haha: vá... fljótt skipast veður í lofti.. hehe

 

DÆMI UM ONE STROKE...

 

 

Funky flowers and fantasy bugs :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 16:50:57 / Ingan

Whut

Erum við svona ljót að það kommentar bara 1??? Haa? GUFFA?? hehe *fruss*

En það er allt að gerast! Styttist óðum í utanför, bankainnistæðan mín hækkaði um 15.000 áðan því ég vann á Ara númer í HHÍ og ég er skráð á Photoshop námskeið síðustu helgina í apríl! Víhííííí!!!

En ég þarf að fara að vinna aftur. Er svolítið aum í smettinu eftir meðferð No2!


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 14:48:50 / Ingan

MJÁÁÁÁÁ

Fallegasta litla fjölskyldan í bænum eða??? ;)

p.s. Ari hefði eiginlega þurft að vera ber að ofan til þess að losna við svarta skuggan á hökunni EÐA ég að vera betri í photoshop og betri í hraðatökum;) hahaha


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 10:19:54 / Ingan

Spenna, meðferð og svefnleysi

Ég er á því tímabili sem ég sef laust. Ég sem vakna aldrei á nóttunni og sef eins og steinn venjulega :| Veit ekki af hverju þetta er.. Vakna líka alltaf á sömu tímunum. Þetta gerðist síðast í London. Þá vaknaði ég alltaf rúmlega 6 (tíu mínútur til eða frá..) Núna er það 7! Kíki alltaf á klukkuna og held að Ari hafi sofið yfir sig.. haha:)

Ég er eitthvað svo spennt inni í mér! Sms-aðist við Marlín í gær og fékk hún pakkann loksins í gær! Var voða sátt:) Gaf Rósu Florence 66°N galla f. næsta vetur, Jóel 2 bækur og páskaegg og Marlín og Nick harðfisk og fullt af nammi! Mmmm:) Íslenska nammið er nottla bara best!!!!!

Styttist í maí! Maí verður skemmtilegur!:) Mun einkennast af ferðalögum og þá sérstaklega hjá Ara.. Hann ætlar nebbla að skreppa til Mineappolis (hvernig sem það er skrifað) 3-7. maí líklegast og svo stingum við skötuhjú af 10.maí! Þá er stefnan sett á London. Fljúgum með Iceland Express til Stansted, kaupum frammogtilbaka miða þar á skitinn 2þús kall, hlöðum Oystercardin og tökum lestina til Vauxhall eða Stockwell :) Löbbum svo þaðan á áfangastað og mætum vonandi svarta rónadvergnum! Hahaha!
Við erum búin að fá gistingu hjá Marlín og fjölsk og verður það bara sweet! Þá getur maður líka aðeins hnoðast með krakkana og hlegið með Marlín og Nick! Svo þekkir maður nottla allt hvaða leiðir maður fer þaðan og það verður ekkert vesen og enginn villist :D híhí!

Það sem við erum búin að plana í London er nú ekki margt.. en samt eitthvað:

  • Sightseeing túr um borgina. Sýna Ara mínum helstu staðina og segja endalaust "Þarna var ég.." haha:D
  • Fara í Camden Town! Líklegast á laugardeginum því þá er mesta lífið þar! Veit að Ari á eftir að fíla sig í ræmur þar :)
  • Hver veit nema maður skelli sér í Notting Hill og sýni Ara skotabúðina. hehe. Þá getur hann kannski fullkomnað dressið;)
  • Oxford Street verður heimsótt líklegast nokkrum sinnum þar sem buddan verður tekin upp! ójá:D Primark var að opna þar svo ég veit ekki hvort farin verður ferð í Bromley South.. kemur í ljós!
  • Nando's verður sótt heim! ójááá! og viti menn ef ég hleyp ekki yfir í Sainsbury's og kaupi nokkrar marineringar frá þeim! hehe!

og fullt fleira:) ´

Ekkert er búið að plana með Danmörku.. nema við förum þangað þri. 15. maí og ætlum svo að splitta okkur á fimmtudeginum og fara til Gyðu sys og Bjössa :)

En úr einu í annað.. Ég er í meðferð:) hehe.. ekki áfengis.. bara sýru! er að reyna að fá húðina mína lagaða eitthvað ;) fór í gær og húðin tók bara vel við. Fer svo 2x í viðbót og á að fá að sjá mun í næstu viku:) En ég má ekkert fara í ljós næstu 3-4 vikurnar þannig Guffan mín græddi nokkra tíma á Smart;) hehe

Knús í ræmur.. FARIN


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 21:31:12 / Ingan

Júhúúú! (lesist með tilfinningu)

Sit hérna í foreldrahúsum að horfa á X-factor, orðin þokkalega spennt og veit ómögulega með hverjum halda skal. Mér finnst nebbla bæði Hara og Jógvan algjör snilld :D

En shitturinn Palli... Hvað væri sagt ef Einar væri svona við stelpurnar??? Nei ég BARA spyr 8| Mér finnst þetta einum, nei fjórum of! Hef samt alltaf fílað Palla í ræmur.. en þetta er eitthvað að trufla mig!

Er byrjuð að hekla litla peysu handa lítilli prinsessu en er strand í 2. umferð! hehe.. Skil ekki leiðbeiningarnar fyrir upphleyptan stuðul (eða hvað hann nú hét) :| en fæ múttu til að hjálpa mér á sunnud!

Annars er ég hress! Er ekki búin að klæða mig í dag.. hljóp út í náttbuxunum þegar enginn sá og út í bíl! hehe.. hver nennir að klæða sig á svona dögum?? jú ég skellti mér reyndar í peysu:)

En jæja.. veit ekkert hvað ég á að bulla í ykkur.. þarf að muna að hringja í doksann eftir helgi til þess að láta hann kíkja á hnúðinn á hálsinum á mér 8| örugglega bara e-ð eðlilegt en vil samt láta kíkja á þetta..

Vinna á morgun og svo förum við skötuhjú austur á sun..... LATER


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 10:13:49 / Ingan

finally

Blog.central komið í lag:) ætlaði að blogga í gær en nei.. allt bilað!

Fínt að frétta! Peikaði Canon 400D á föstudaginn og brosi út að eeeeeeeyrum:D Er svo búin að skrá mig á smá helgarnámskeið helgina eftir páska til þess að læra almennilega á gripinn :) Gleði gleði..

Stefnan er svo sett á ljósmyndaskóla Sissu í haust:) Byrjuð að leggja fyrir money enda er þetta Fjandi dýrt! (afsakið orðbragðið;))

En jæja mánaðarmót.. crazy to do;) er að prenta út reikninga og stelast til að blogga meðan prentarinn prentar;) hehh

 LATER:D

   


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 42